2024-05-21 15:55:49 CEST

2024-05-21 15:55:49 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Hampiðjan hf. - Kynningarfundur fyrir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2024 fimmtudaginn 23. maí.


Hampiðjan hf. mun birta uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2024 eftir lokun markaða fimmtudaginn 23. maí.

Fjárfestakynning verður haldin sama dag, klukkan 16:15 í höfuðstöðvum félagsins að Skarfagörðum 4. Kynningunni verður jafnframt streymt og verður vefstreymið aðgengilegt á heimasíðu félagsins fyrir fundinn.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar á meðan á fundi stendur á netfangið fjarfestatengsl@hampidjan.is

Árshlutareikningurinn verður aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar. Upptaka af kynningunni verður einnig aðgengileg á heimasíðunni að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson, forstjóri, í síma 664-3361