2013-12-20 16:46:27 CET

2013-12-20 16:47:27 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Company Announcement (is)

Áframhaldandi viðskipti á First North í aðdraganda skráningar á Aðalmarkað


Líkt og fram kom í fréttatilkynningu HB Granda 12. nóvember síðastliðinn stóð
til að  afskrá félagið af First North markaðstorgi Nasdaq OMX Iceland hf. Tekin
hefur verið ákvörðun um að óska ekki eftir framangreindri afskráningu og verður
því áfram hægt að eiga viðskipti með hluti í félaginu fram að töku þeirra til
viðskipta á Aðalmarkað. 

Undirbúningur að því að hlutir HB Granda hf. verði teknir til viðskipta á
Aðalmarkaði stendur nú yfir. Miðar sá undirbúningur að því að viðskipti með
hluti félagsins á Aðalmarkaði hefjist í vor.