2008-01-14 17:39:18 CET

2008-01-14 17:39:18 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Seðlabanki Íslands - Fyrirtækjafréttir

- Seðlabanki Íslands rýmkar reglur um veð í viðskiptum við bankann


Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að rýmka reglur um verðbréf sem
teljast veðhæf í reglulegum viðskiptum fjármálafyrir¬tækja við bankann.
Breytingarnar miða að því að færa reglur Seðlabankans nær því sem gerist í
nálægum löndum þannig að rekstrarumhverfi og samkeppnisstaða íslenskra banka
verði áþekk því sem erlendir samkeppnisbankar búa við að því er varðar
veðlánaviðskipti við seðlabanka. Meðal nýrra veðhæfra verðbréfa verða nú
verðbréf í erlendum gjaldmiðli auk þess sem rýmkaðar verða reglur um sértryggð
skuldabréf, samkvæmt nánari skilyrðum sem útfærð verða í reglum Seðlabankans. 

Ýmsir seðlabankar hafa rýmkað mögulega lausafjárfyrirgreiðslu sína undanfarnar
vikur og mánuði. Á íslenskum millibankamarkaði hafa viðskipti gengið vel fyrir
sig, ávöxtun verið í eðlilegu sam¬hengi við stýrivexti Seðlabankans og miðlun
lauss fjár undan¬tekningarlaust verið hnökralaus. 

Nýjar reglur um veð verða kynntar fjármálafyrirtækjum á næstu dögum og birtar
með hefðbundnum hætti. 

Nánari upplýsingar veitir Sturla Pálsson framkvæmdastjóri alþjóða- og
markaðssviðs Seðlabankans í síma 569-9600.