|
|||
2011-05-12 13:45:13 CEST 2011-05-12 13:46:14 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 11 0815 og RIKV 11 1115Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 11 0815 og RIKV 11 115 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 11 0815: Alls bárust 23 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 16.255 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 10.305 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,250 (flatir vextir 2,99%). RIKV 11 1115: Alls bárust 14 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 4.125 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 3.225 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,473 (flatir vextir 3,05%). |
|||
|