|
|||
2010-04-23 11:56:19 CEST 2010-04-23 11:57:20 CEST REGULATED INFORMATION Sparisjóðurinn í Keflavík - FyrirtækjafréttirRíkið yfirtekur rekstur Sparisjóðsins í Keflavík - Hefur ekki áhrif á daglega starfsemiSparisjóðurinn í Keflavík Ríkið yfirtekur rekstur Sparisjóðsins í Keflavík Hefur ekki áhrif á daglega starfsemi Fjármálaeftirlitið hefur tekið yfir starfsemi Sparisjóðsins í Keflavík. Starfsemin mun halda áfram í óbreyttri mynd og verður opnunartími útibúa því eins og áður hefur verið. Allar innstæður eru tryggðar samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands frá því í febrúar 2009 sem staðfest var í desember síðastliðnum. Engin röskun verður á þjónustu við viðskiptavini. Stjórn Sparisjóðsins í Keflavík hefur farið fram á að Fjármálaeftirlitið taki yfir starfsemi sparisjóðsins í kjölfar þess að samningaviðræðum við kröfuhafa hans lauk án árangurs. Í ákvörðunum Fjármálaeftirlitsins um ráðstöfun eigna og skulda sparisjóðsins kemur fram að innlán Sparisjóðsins í Keflavík og eignir hafa verið fluttar til nýs sparisjóðs. Spkef sparisjóður hefur verið stofnaður og er að fullu í eigu ríkisins. Í stjórn Spkef sparisjóði: • Ásta Dís Óladóttir formaður • Helga Loftsdóttir • Valdimar Halldórsson • Anna María Pétursdóttir • Ottó Hafliðason Fjármálaeftirlitið hefur skipað Sparisjóðnum í Keflavík bráðabirgðastjórn. Í bráðabirgðastjórn Sparisjóðsins í Keflavík eru: • Soffía Eydís Björgvinsdóttir,hdl., formaður • Auður Ósk Þórisdóttir, löggiltur endurskoðandi • Elvar Örn Unnsteinsson, hrl Meðfylgjandi skjal inniheldur ákvörðun Fjármálaeftirlitsins varðandi Sparisjóðinn í Keflavík. Viðhengi við þessa tilkynningu: http://fme.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=7196 |
|||
|