2015-10-29 12:25:35 CET

2015-10-29 12:26:37 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Mosfellsbær - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2016 og næstu þrjú ár


Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2016 og næstu þrjú ár þar á eftir var
lögð fram í bæjarráði Mosfellsbæjar í morgun. Bæjarráð vísaði áætluninni til
fyrri umræðu í bæjarstjórn 4. nóvember nk. 

Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir að tekjur nemi 8.762 millj. kr., gjöld fyrir
fjármagnsliði nemi 7.927 millj. kr. og fjármagnsliðir 696 m.kr. 

Áætlunin gerir ráð fyrir að rekstrarafgangur verði 139 m.kr. Áætlað er að
framkvæmdir nemi 613 millj. kr. Gert er ráð fyrir að íbúum fjölgi um 3,4% milli
ára. 

Helstu kennitölur í rekstri eru að framlegð er 13,5% og veltufé frá rekstri er
10,2%.  Skuldaviðmið skv. sveitastjórnarlögum er áætlað 116,0% í árslok 2016. 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í síma 525 6700.



Aldís Stefánsdóttir, forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar

s.691-1254, aldis@mos.is.