2015-10-29 15:22:40 CET

2015-10-29 15:23:42 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : Standard and Poor's staðfestir lánshæfismatseinkun bankans, BBB-/A-3 með stöðugum horfum


Standard & Poor's hefur staðfest lánshæfismatseinkun Íslandsbanka, BBB-/A-3, með
stöðugum horfum eftir að tilkynnt var um breytingar á tillögu hóps kröfuhafa
Glitnis um stöðuleikaframlag.



Helstu breytingar frá áður tilkynntum tillögum kröfuhafa Glitnis til ríkisins
eru að Glitnir mun afsala öllu hlutafé ISB holding ehf., sem er eigandi 95%
hlutafjár Íslandsbanka hf., til stjórnvalda. Þessar breytingar fela í sér að
Íslandsbanki mun ekki greiða sérstakar arðgreiðslur til Glitnis eins og áður var
gert ráð fyrir.



Í tilkynningu S&P segir að þessi nýi samningur, þ.e. að færa bankann í eigu
ríkisins og að Íslandsbanki greiði ekki út arð, sé einfaldari en fyrri samningur
og mun auðvelda eigendum Glitnis að losa fjármagn frá Íslandi fyrir árslok.



S&P segir einnig að þeir geri ekki ráð fyrir að Íslandsbanki sé langtíma
fjárfesting fyrir ríkið og telur að bankinn verði settur í söluferli innan
tveggja ára. Einnig telja þeir líklegt að eiginfjárhlutföll verði lækkuð fyrir
söluferlið og spá að RAC (Risk Adjusted Capital) hlutfallið verði 12%-13% fyrir
lok árs 2017 sem er lækkun frá miðju ári 2015 en þá var RAC hlutfallið 17.3%.



Stöðugar horfur S&P endurspegla forsendur þeirra um að bæði eiginfjárstaða og
lausafjárstaða  bankans verði áfram sterk eftir væntanlegt útflæði innlána í
kjölfar afnáms gjaldeyrishafta á næstu mánuðum.



Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 844
4752.
Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 844 4005.



[HUG#1962477]