2008-07-03 12:09:50 CEST

2008-07-03 12:10:50 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
365 hf. - Fyrirtækjafréttir

Kauptilboð til hluthafa


Á hluthafafundi 365 hf. sem haldinn var 1. júlí 2008 kl. 14.00 voru
eftirfarandi tillögur samþykktar. Hluthafar sem fara með 88,5 % atkvæða voru
mættir til fundarins. 

Tillaga um að stjórn félagsins verði falið að óska eftir afskráningu hlutabréfa
félagsins úr kauphöll OMX Nordic Exchange á Íslandi. 

- Tillagan var samþykkt með 88,5% greiddra atkvæða og var því samþykkt
samhljóða. 

Tillaga um að stjórn félagsins verði falið að kaupa hluti þeirra hluthafa í
félaginu er þess óska fyrir kl. 16.00 þann 11. júlí 2008. Greitt verði á
kaupverði kr. 1.20 á hvern hlut. 

- Tillagan var samþykkt samhljóða. 

Tillaga um að stjórn félagsins verði heimilað í tengslum við framangreind kaup
á hlutabréfum í 365 hf. , sbr. dagskrárlið 2, að kaupa allt að 15% eigin hluta
fyrir kr. 1.20 hvern hlut.  Heimildin skal gilda til og með 31. júlí 2008.
Verði eigin hlutir í eign félagsins umfram 10% eftir viðskiptin skal stjórn
félagsins lækka hlutafé félagsins í samræmi við lög um hlutafélög til að eigin
hlutir eftir slíka hlutafjárlækkun verði ekki umfram 10% af hlutafénu. 

- Tillagan var samþykkt samhljóða. 


Stjórn 365 hf. gerir hluthöfum 365 hf. kauptilboð í samræmi við samþykktar
tillögur hluthafafundar. Kauptilboðið tekur gildi 3. júlí 2008 kl. 10.00 og því
lýkur 11. júlí 2008 kl. 16.00. 

Samantekt á skilmálum kauptilboðs, sem hluthafar fá einnig sent í pósti á skráð
lögheimili þeirra, er í viðhengi. 

Allar nánari upplýsingar veitir Hildur Sverrisdóttir, regluvörður 365 hf., í s.
512-5000 eða í netfangi: hildurs@365.is