|
|||
2013-09-26 17:08:00 CEST 2013-09-26 17:09:00 CEST REGULATED INFORMATION Reginn hf. - FyrirtækjafréttirReginn hf. undirritar kaupsamning við fasteignafélagÞann 14. febrúar s.l. sendi Reginn, frá sér tilkynningu um samkomulag um leigu og samþykki á tilboðum um kaup á fjórum fasteignafélögum með fyrirvörum. Þegar hefur verið tilkynnt um kaup á þrem af fjórum fasteignafélögunum. Undirritaður var kaupsamningur milli Regins og Vist ehf. í dag, 26. september og hefur þá verið gengið frá kaupum á öllum fasteignafélögum sem var getið í fyrrnefndri tilkynningu. Fasteignir Vist eru Ármúli 4 og 6 í Reykjavík, Kaupvangur 3b, Fljótdalshéraði, auk hluta í Austurveg 10, lóð við Austurveg 8a, Árborg og Hafnarstræti 1, Ísafirði. Stærð eignarhlutar fasteigna félagsins er um 4.200 m2. Kaup þessi fylgja fjárfestingastefnu Regins sem felur í sér að auka hlut félagsins í skrifstofuhúsnæði. Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson Forstjóri Regins hf. Sími: 512 8900 / 899 6262 |
|||
|