|
|||
2013-09-26 18:23:52 CEST 2013-09-26 18:24:53 CEST REGULATED INFORMATION Eyrir Invest hf. - FyrirtækjafréttirEyrir Invest - Uppgreiðsla EYRI 11 1Eyrir Invest hf. greiðir upp allan skuldabréfaflokkinn EYRI 11 1. Uppgreiðsla til vörsluaðila samkvæmt upplýsingum frá Verðbréfaskráningu Íslands mun fara fram þann 30. september 2013, þar sem höfuðstóll og áfallnir vextir verða greiddir að fullu. Uppgreiðsla fer fram í samræmi við heimild í skilmálum flokksins. Eyrir Invest hefur greitt allar aðrar skammtímaskuldbindingar og er nú að fullu langtímafjármagnað. Hluti af uppgreiðslum annarra skulda var háð heimild frá Seðlabanka Íslands til að greiða upp erlendar skammtímaskuldbindingar fyrir lokagjalddaga. Sú heimild hefur nú fengist. Að lokinni uppgreiðslu á EYRI 11 1 mun Eyrir Invest óska eftir afskráningu skuldabréfaflokksins úr kauphöll og Verðbréfaskráningu Íslands. H.F. Verðbréf annast umsjón uppgreiðslunnar. Reykjavík, 26. september 2013 Frekari upplýsingar: Andri Guðmundsson, H.F. Verðbréfum Sími: 585 1700 |
|||
|