|
|||
2014-06-11 14:55:56 CEST 2014-06-11 14:56:57 CEST REGULATED INFORMATION Reginn hf. - FyrirtækjafréttirReginn hf. - Óveruleg áhrif vegna breytinga á fasteignamati 2015Komið hefur fram í fjölmiðlum að Þjóðskrá Íslands hafi kynnt breytingu á útreikningi á fasteignamati íbúða- og atvinnuhúsnæði. „Þessar breytingar hófust árið 2009 þegar nýjar og nákvæmari aðferðir voru teknar upp við mat á íbúðarhúsnæði. Nú eru teknar upp sambærilegar aðferðir við mat á atvinnuhúsnæði og húsum á bújörðum til sveita, sem endurspegla betur markaðsverðmæti á hverjum tíma“. Reginn hf. hefur nú yfirfarið nýtt fasteignamat á öllum sínum fasteignum þar á meðal nýkeyptum eignum. Niðurstaðan er sú að hækkun á fasteignamatinu fyrir árið 2015 er innan verðlagsviðmiðana sem rekstraráætlanir félagsins taka mið af. Því mun breyting á fasteignamati félagins fyrir árið 2015 vera innan áætlana félagsins. Þessi niðurstaða á fasteignamati eignasafnsins mun því hvorki hafa áhrif á áætlanir félagsins né rekstrarafkomu þess miðað við núverandi rekstur. Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson Forstjóri Regins hf. S: 5128900 / 8996262 |
|||
|