|
|||
![]() |
|||
2015-12-28 11:02:52 CET 2015-12-28 11:02:52 CET BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.Í 52. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 417.684 eigin hluti fyrir 9,9 m.kr. eins og hér segir: Dagsetning Tími Keyptir Viðskiptave Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir hlutir rð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 22.12.2015 15:24 120.000 23,65 2.838.00 24.355.297 0 -------------------------------------------------------------------------------- 23.12.2015 14:45 297.684 23,65 7.040.22 24.652.981 7 -------------------------------------------------------------------------------- Samtals 417.684 9.878.22 7 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag. TM hefur nú keypt samtals 24.652.981 hluti í félaginu sem samsvarar 79,5% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 551,6 milljónum króna. TM á nú samtals 3,3% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en 31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Viðarsson, forstjóri s: 515-2609 sigurdur@tm.is |
|||
|