|
|||
2015-12-28 11:22:43 CET 2015-12-28 11:22:43 CET REGLERAD INFORMATION Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning um kaup Sjóvá á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ 52. viku 2015 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 8.403 eigin hluti fyrir kr. 106.886 eins og hér segir: Dagsetnin Tími Keyptir Viðskiptave Kaupver Eigin hlutir Sjóvá eftir g hlutir rð ð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 21.12.201 11:40:0 8.403 12,72 106.886 29.284.227 5 5 Samtals 8.403 106.886 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. júlí 2015, sbr. og tilkynning til Kauphallar dags. 7. júlí 2015. Sjóvá hefur nú keypt samtals 29.284.227 hluti í félaginu sem samsvarar 73,21% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 359.935.841. Sjóvá á nú samtals 1,84% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.592.520.994. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 40.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016, en þó aldrei síðar en 26. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. |
|||
|