2024-05-07 19:39:45 CEST

2024-05-07 19:39:45 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Orkuveita Reykjavíkur - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Orkuveita Reykjavíkur - Útboð á grænum skuldabréfum 14. maí


Orkuveita Reykjavíkur (Orkuveitan) efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 14. maí 2024. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR020934 GB og OR180255 GB.

OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 24.262 m.kr. í flokknum.

OR180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 31.736 m.kr. í flokknum.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 þriðjudaginn 14. maí 2024. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 21. maí 2024.

Nánari upplýsingar veita: 

Snorri Hafsteinn Þorkelsson, framkvæmdastjóri Fjármála Orkuveitunnar, sími: 516 6100, netfang: snorri.hafsteinn.thorkelsson@or.is
Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is