|
|||
2008-05-08 11:36:10 CEST 2008-05-08 11:37:06 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirLeiðrétting - Ráðnir framkvæmdastjórar hjá Icelandair Group - Frétt birt 2008-05-08 11:11:51 CESTLeiðrétting - texta á ensku skipt út fyrir texta á íslensku. Árni Hermannsson og Erlendur Svavarsson hafa verið ráðnir framkvæmdastjórar á sviði leiguflugs og flugvélaviðskipta hjá Icelandair Group. Til þessa sviðs heyra fimm fyrirtæki, Loftleiðir-Icelandic, Bláfugl, Icelease, Travelservice í Tékklandi og Latcharter í Lettlandi, og munu þeir Árni og Erlendur sinna samræmingar- og stefnumótunarverkefnum á sviðinu. Árni mun jafnframt áfram gegna stöðu fjármálastjóra Loftleiða-Icelandic, en hann hefur gegnt því starfi frá árinu 2002. Erlendur hefur starfað hjá Icelandair Group og forverum þess frá árinu 2003, og var áður sölu- og markaðsstjóri Loftleiða-Icelandic. |
|||
|