|
|||
2011-10-17 17:49:08 CEST 2011-10-17 17:50:09 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirUndirritun samnings í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaðiÍ dag var skrifað undir samning milli Lánamála ríkisins f.h. ríkissjóðs og Straums fjárfestingabanka í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Er samningurinn samhljóða samningum er gerðir voru við aðra aðalmiðlara þann 29. apríl 2011. Samningurinn gildir frá 18. október 2011 til 31. mars 2012. Frá 18. október 2011 hafa fimm fjármálafyrirtæki heimild til að kalla sig „aðalmiðlara með ríkisverðbréf“. Þau eru: Íslandsbanki, MP Banki, Landsbankinn, Arion banki og Straumur Fjárfestingarbanki. Frekari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson hjá Lánamálum ríkisins í síma 569 9600. |
|||
|