2016-06-01 10:54:36 CEST

2016-06-01 10:54:36 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarskipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Fjarskipti hf. : Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Á aðalfundi Fjarskipta hf. þann 17. mars 2016 var samþykkt að heimila félaginu,
í samræmi við 55. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995, að kaupa allt að 10% af eigin
hlutum, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til
að setja upp formlega endurkaupaáætlun skv. 116. gr. laga um verðbréfaviðskipti
nr. 108/2007 eða á grundvelli 1. tölul. 3. mgr. 115 gr. og 2. mgr. 119. gr. laga
um verðbréfaviðskipti og reglugerða sem settar eru á grundvelli 118. og 131. gr.
sömu laga.

Stjórn Fjarskipta hf. hefur á grundvelli  fyrrgreindar samþykktar aðalfundar
Fjarskipta hf. þann 17. mars 2016 tekið ákvörðun um kaup á eigin bréfum samkvæmt
endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Endurkaupin munu að hámarki nema 6.734.000 hlutum eða 2,5% af útgefnum hlutum í
Fjarskiptum hf., en þó þannig að heildarkaupverð verði ekki hærra en 300 m.kr.
Áætlunin er í gildi til 30. september 2016 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup
eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd
endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum
og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr.
2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr.
630/2005.

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup
hvers dags munu að hámarki nema 554.809 hlutum eða sem nemur 25% af meðaltali
daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Kauphallar Íslands hf.
í maí 2016.

Verð fyrir hvern hlut skal vera að hámarki hæsta verð síðustu óháðu viðskipta
eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem
viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra, í samræmi við 3. mgr. 55.
gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995.

Viðskipti Fjarskipta hf. með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar
verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin
fara fram.



Nánari upplýsingar:

Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is, sími 669 9151




[HUG#2017073]