2010-12-08 17:47:57 CET

2010-12-08 17:48:56 CET


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 11 0415


Mánudaginn 13. nóvember kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í 
flokki RIKV 11 0415 sem er með gjalddaga 15. apríl 2011.

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. 
Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti
er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagur 15. Desember 2010.
Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX á Íslandi fimmtudaginn 16.
desember 
2010.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins, í síma 569
9633.