|
|||
2013-12-30 17:11:03 CET 2013-12-30 17:12:04 CET REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - FyrirtækjafréttirLánasjóður sveitarfélaga ohf. – Áfrýjun héraðsdóms vegna láns í erlendri myntÞann 11. nóvember féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Sveitarfélagsins Skagafjarðar gegn Lánasjóði sveitarfélaga þar sem deilt er um hvort lán sem sveitarfélagið tók hafi verið í erlendri mynt eða íslenskum krónum. Niðurstaða dómsins var sú að umrætt lán hafi verið í íslenskum krónum bundið gengi gjaldmiðla og fallist á viðurkenningarkröfu sveitarfélagsins um að eftirstöðvar lánsins næmu tiltekinni fjárhæð. Lánasjóður sveitarfélaga hefur tekið ákvörðun um að áfrýja dómi héraðsdóms til Hæstaréttar. Lánasjóðurinn áætlar að verði niðurstaðan sú sama í Hæstarétti og héraðsdómi gæti tjón hans orðið um 114,5 milljónir króna. Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson framkvæmdastjóri í síma 515 4949 eða 895 4567. |
|||
|