|
|||
2013-01-11 16:13:06 CET 2013-01-11 16:14:07 CET REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirÚtgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2013Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2013 kemur fram að Reykjavíkurborg áætlar lántökur að fjárhæð 3.299 mkr vegna framkvæmda. Stærð skuldabréfaflokksins RVK 09 1 er 16.090 mkr að nafnverði og stærð skuldabréfaflokksins RVK 19 1 er 1.195 mkr að nafnverði. Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 10 janúar eftirfarandi tillögu borgarstjóra: „Borgarráð samþykkir heimild til fjármálastjóra að undirbúa, á grundvelli samþykktar fjárhagsáætlunar 2013, lántökur á árinu 2013 fyrir allt að 3.299 milljón króna. Lántakan verði framkvæmd með stækkun á verðtryggðum skuldabréfaflokkum Reykjavíkurborgar RVK 19 1 og RVK 09 1. Fjármálastjóra verði falið að ákveða m.t.t. markaðsaðstæðna hverju sinni hvort boðið verði í RVK 19 1, RVK 09 1 eða báða flokka samtímis. Janúar-júní 2013 verði stefnt að því að gefa út skuldabréf að verðmæti allt að 1.500 milljónir króna á eftirfarandi útboðsdögum: 30. janúar, 6. mars, 10. apríl, júlí-desember 2013 verði stefnt að því að gefa út skuldabréf að verðmæti allt að 1.799 milljónir króna á eftirfarandi útboðsdögum: 4. september, 9. október, 6. nóvember, 4. desember.“ Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi a.m.k 1 virkum degi fyrir útboð. Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 411-1111 |
|||
|