2009-02-13 11:05:53 CET

2009-02-13 11:06:53 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel Food Systems hf. - Fyrirtækjafréttir

Tilfærsla á eignarhlut hluthafa til dótturfélags


NBI hf. (Landsbankinn) hefur tilkynnt Marel Food Systems hf. að stofnað hafi
verið fjárfestingarfélagið Horn Fjárfestingarfélag ehf. utan um hlutabréfaeign
bankans.   Markmið með stofnun félagsins er að aðgreina utanumhald vegna
fjárfestinga í hlutabréfum frá meginstarfsemi bankans.  Horn Fjárfestingafélag
ehf.  hefur yfirtekið nær allar hlutabréfaeignir í skráðum og óskráðum félögum
sem fluttust frá Landsbanka Íslands hf. til NBI hf. 

Meðal þeirra eigna sem Horn Fjárfestingarfélag ehf. hefur yfirtekið er
neðangreindur eignarhlutur: 

Nafn                       Nafnverð      Hlutfall
Marel Food Systems hf.     108.873.565   18,76

Horn Fjárfestingarfélag ehf. er í fullri eigu NBI hf.

Nánari upplýsingar veitir Ívar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Horns
fjárfestingarfélags ehf. s: +354 8206497