|
|||
2013-01-16 18:00:00 CET 2013-01-16 18:05:04 CET REGLERAD INFORMATION Fagfjárfestasjóðurinn OFAN SVÍV - FyrirtækjafréttirSkilmálabreyting á OFANSV 11 1Í kjölfar kauptilboðs Regins hf. í fasteignina Ofanleiti 2 mun OFAN SVÍV fagfjárfestasjóður óska eftir því við eigendur skuldabréfaflokksins OFANSV 11 1 að heimild verði veitt til að breyta skilmálum flokksins þannig að skuldaraskipti verði gerð á lánssamningi útgefanda við SVÍV ses. kt. 530978-0449. Undir 2. mgr. liðarins „Sérstök skilyrði og heimildir til gjaldfellingar“ í skilmálum flokksins kemur fram að útgefanda sé óhemilt að gera skilmálabreytingar á lánssamningi við SVÍV ses. nema með samþykki 66,67% eigenda skuldabréfa flokksins m.v. fjárhæð. Skilmála skuldabréfaflokksins er að finna í lýsingu sem var birt þann 21. desember 2012. Lýsingu er hægt að nálgast á eftirfarandi vefslóð: http://www.fme.is/media/lysingar/OFANSV-11-1-prospectus-20121221.pdf Undir liðnum „Tryggingar gegn greiðslu“ koma fram helstu skilmálar lánssamnings útgefanda við SVÍV ses. Þeir skilmálar ásamt öllum öðrum skilmálum lánssamningsins verða óbreyttir. Skilmálabreyting á lánssamningi og flokknum OFANSV 11 1 felur í sér að nýr skuldari af lánsamningi útgefanda við SVÍV ses. verður Reginn A1 ehf. kt. 521009-1010, dótturfélag Regins atvinnuhúsnæðis ehf. sem er í eigu Regins hf. Til samræmis verður óskað eftir heimild til breytingar á reglum OFAN SVÍV þar sem að í stað núverandi mótaðila útgefanda kemur nýr skuldari Reginn A1 ehf. í staðinn. Samþykki sama hlutfalls eigenda skuldabréfa flokksins m.v. fjárhæð er áskilið. Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon forstöðmaður hjá Stefni í síma 444-7472. |
|||
|