2015-08-26 22:24:38 CEST

2015-08-26 22:25:40 CEST

REGULATED INFORMATION

Islandic
Ríkisútvarpið ohf. - Ársreikningur

Árshlutauppgjör Ríkisútvarpsins ohf. 1. september 2014 til 30. júní 2015

Ríkisútvarpið ohf. birtir árshlutauppgjörJákvæður viðsnúningur í rekstri Ríkisútvarpsins
ohf. og hagnaður af rekstri fyrstu 6 mánaða ársins 2015Breytt rekstrarár Ríkisútvarpsins ohf.Á hluthafafundi Ríkisútvarpsins ohf. þann 24.
febrúar 2015 var samþykkt breyting á samþykktum félagsins þess efnis að
reikningsár félagsins verði almanaksárið í stað 1. september til 31. ágúst.
Breytingin var gerð í samræmi við óskir frá hluthafa félagsins, Fjársýslu
ríkisins og Ríkisendurskoðun. Af þeim sökum er árshlutauppgjörið sem nú er birt
frábrugðið uppgjöri fyrri ára. Árshlutauppgjörið nær því til tímabilsins 1.
september 2014 til 30. júní 2015 eða tíu mánuði. Til samanburðar er birt afkoma
síðasta rekstrarárs (1. september 2013-31.ágúst 2014). Í þessum
rekstrarreikningi er í fyrsta skipti gerð ítarleg grein fyrir
reikningshaldslegum aðskilnaði samkeppnisrekstrar og almannaþjónustu líkt og
áskilnaður er um. Sem kunnugt er byggjast tekjur RÚV annars vegar á
þjónustutekjum og hins vegar auglýsingasölu og öðru sem hér er flokkað
sérstaklega og nefnt samkeppnisrekstur. Ljóst er að afkoma samkeppnishluta
rekstrarins, þ.e. fyrst og fremst afrakstur auglýsingasölu,  skilar hagnaði sem
nýtist félaginu til að fjármagna lögbundna almannaþjónustu
Ríkisútvarpsins.Helstu niðurstöður milliuppgjörsins:

Jákvæður viðsnúningur í rekstri frá fyrra
ári.

Rekstrarniðurstaða tíu mánaða
tímabils er 36 m.kr. tap, samanborið við 271 m.kr tap á síðasta
rekstrarári.

Rekstrarniðurstaða fyrstu sex mánaða ársins 2015 er 17
m.kr. hagnaður.

Hagræðingaraðgerðir hafa skilað sér og jafnvægi er að
komast á í rekstri félagsins.

Enn
ríkir óvissa í fjármálum RÚV vegna yfirskuldsetningar
félagsins.

Helstu niðurstöður árshlutauppgjörs Ríkisútvarpsins
eru að umtalsverður viðsnúningur hefur orðið á rekstri félagsins frá fyrra ári.
Rekstrarniðurstaðan sýnir tap upp á 36 m.kr. á fyrstu tíu mánuðum yfirstandandi
rekstrarárs (1. september 2014 til 30. júní 2015) meðan tap síðasta
rekstrarárs, 2013-2014 var 271 m.kr. eftir skatta. Þá kemur einnig fram að á
fyrstu sex mánuðum ársins 2015 (1. janúar til 30. júní 2015) er 17 m.kr.
hagnaður.

Helstu ástæður þess að reksturinn batnar eru að tekjur hækka á milli ára og
rekstrarkostnaður fer lækkandi vegna ýmissa hagræðingaraðgerða sem gripið hefur
verið til í starfsemi félagsins. Þetta gerist þrátt fyrir að kostnaður við
dreifikerfi hafi hækkað verulega en sá kostnaður byggist á samningi um stafræna
dreifingu sem gerður var vorið 2013. Afskriftir rekstrarfjármuna lækka einnig
milli ára en fjármagnskostnaður er enn hár vegna mikillar skuldsetningar.
Kostnaður við sameiginlegan rekstur og yfirstjórn lækkar milli tímabila.
Stöðugildum fækkar, þau voru að meðaltali 257 á tímabilinu en þeim hefur fækkað
á undanförnum árum, voru 297 árið 2013 og 324 árið 2008.

Að mati stjórnar Ríkisútvarpsins er rekstur félagsins að nálgast ákveðið
jafnvægi miðað við þá þjónustu sem nú er veitt. Breytingaferli síðasta árs
hefur skilað umtalsverðri hagræðingu í rekstri félagsins sem að hluta til sést
í þessu árshlutauppgjöri en ávinningur af þeim breytingum á enn eftir að skila
sér að fullu. Lögð hefur verið áhersla á að hagræða í umgjörð en verja dagskrá
eins og kostur er.

Efnahagur og framtíðarhorfur

Í sjálfstæðri úttekt, sem PwC vann fyrir stjórn félagsins vorið 2014, kom fram
að félagið væri yfirskuldsett og gæti ekki staðið undir skuldbindingum sínum að
óbreyttu. Vegur þar þyngst gamalt lán vegna uppgjörs á lífeyrisskuldbindingum.
Félagið hefur samið við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins um tímabundinn frest
á greiðslum af skuldabréfinu. Þá hefur Landsbankinn veitt undanþágu frá
lágmarkskröfu um eigið fé í lánaskilmálum þar sem eigið fé félagsins var á
síðasta ári komið undir tilgreint lágmark. Gildir undanþágan vegna reksturs
félagsins á almanaksárinu 2015. Í áritun endurskoðanda í síðasta ársreikningi
kom fram að vafi léki á greiðsluhæfi félagsins.

Lög um Ríkisútvarpið frá árinu 2013 tóku breytingum þannig að möguleikar
félagsins á öflun auglýsingatekna voru takmarkaðir í upphafi árs 2014 og
útvarpsgjald var lækkað í upphafi árs 2015. Til að bregðast við þessari stöðu
hefur Ríkisútvarpið unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu, ráðist í
margvíslegar hagræðingaraðgerðir og unnið að sölu eigna til að lækka skuldir
félagsins. Eins og áður segir sýnir árshlutauppgjörið að hagræðingin er þegar
farin að bera árangur.

Á undanförnu ári hefur verið unnið að söluferli byggingarréttar á lóð
Ríkisútvarpins sem stjórn félagsins væntir að muni lækka skuldir umtalsvert. Á
hinn bóginn hefur stjórn Ríkisútvarpins vakið athygli eigandans, ríkisins, á
því að þrátt fyrir framangreindar aðgerðir hefur félagið ekki burði til þess að
standa undir þeirri miklu skuldsetningu sem á félaginu hvílir án verulegra
niðurskurðaraðgerða sem áhrif myndu hafa á alla þjónustu félagsins.

Óvissa um framtíð

Ljóst er að auglýsingatekjur Ríkisútvarpsins muni, vegna takmarkana í lögum og
þróunar á markaði, halda áfram að dragast saman að raungildi. Þá liggur fyrir
að nýsamþykktir kjarasamningar á almennum markaði munu hækka rekstrarkostnað
umtalsvert. Gert er ráð fyrir að laun og launatengd gjöld muni vegna þessa
hækka um tæplega 140 m.kr. á seinni hluta ársins 2015 og aftur um 180 m.kr. á
árinu 2016. Áhrif aukinnar verðbólgu verða einnig mikil eða um 70-90 m.kr. á
ári í hækkun rekstrarkostnaðar miðað við verðbólguspár. Stjórn Ríkisútvarpsins
hefur því vakið athygli á því að til að ekki þurfi að grípa til enn frekari
niðurskurðaraðgerða og þjónustuskerðingar megi útvarpsgjald ekki lækka frekar
en orðið er, heldur verði að taka mið af verðlagsþróun.