|
|||
![]() |
|||
2015-12-03 19:37:57 CET 2015-12-03 19:37:57 CET REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumBreyting á stjórn Íbúðalánasjóðs.Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað Sigurbjörn Ingimundarson varaformann í stjórn Íbúðalánasjóðs í stað Þorsteins Arnalds og jafnframt skipað Valdimar Valdemarsson sem fastamann í stjórn. Sigurbjörn Ingimundarson lauk BA námi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2010, á árunum 2010 til 2013 stundaði hann framhaldsnám í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og leggur nú stund á MBA-nám við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hann var við starfsnám og sumarstarf hjá Landsvirkjun árið 2011, hjá LOGOS lögmannsþjónustu 2012-2014 og vinnur nú sem framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Valdimar Valdemarsson hefur verið varamaður í stjórn Íbúðalánasjóðs frá því í september 2013 og hefur undanfarið ár setið stjórnarfundi sem varamaður en tekur nú sæti sem aðalmaður í stjórn. |
|||
|