|
|||
2015-12-07 10:03:16 CET 2015-12-07 10:03:16 CET SÄÄNNELTY TIETO Nýherji hf. - FyrirtækjafréttirHlutafjárútboð Nýherja hf. til hæfra fjárfestaHlutafjárútboð Nýherja hf. til hæfra fjárfesta1) Hlutafjárútboð Nýherja hf. sem Kvika banki hf. annast hefst í dag. Allt að 40 milljónir hluta, eða um 9,76% af heildarhlutafé Nýherja, verða boðnir til hæfra fjárfesta. Markmið með útboðinu er að styrkja eigið fé samstæðu Nýherja og styðja enn frekar við lausnaþróun og þann tekjuvöxt sem hefur verið hjá félaginu síðustu misseri. Tilboðsgjafar geta skilað inn fleiri en einu tilboði og getur útgefandi samþykkt fleiri en eitt tilboð frá hverjum tilboðsgjafa. Útgefandi hefur heimild til að hafna tilboðum einhliða að hluta eða í heild án skýringa. Skila skal inn tilboðum til Kviku banka hf. fyrir kl. 16:00 föstudaginn 11. desember 2015. Áhugasömum aðilum er bent á að hafa samband við markaðsviðskipti Kviku í sima 540 3200 eða á tölvupóstfangið markadsvidskipti@kvika.is. NÝHERJI HF. Nýherji hf. (NASDAQ OMX: NYHR.IC) er samstæða fyrirtækja í upplýsingatækni. Nýherji er þjónustufyrirtæki og hlutverk þess felst í að aðstoða viðskiptavini að ná enn betri árangri í sínum rekstri með aðstoð upplýsingatækni, sérfræðiþekkingu starfsfólks og lipurri þjónustu. Hjá móðurfélaginu starfa 250 manns en hjá samstæðunni um 500. Dótturfélög Nýherja eru TM Software, TEMPO og Applicon, á Íslandi og í Svíþjóð. Nýherji er skráð í Kauphöll Íslands. Nánari upplýsingar er að finna á www.nyherji.is Nánari upplýsingar Markaðsviðskipti Kviku banka hf. í sími 540 3200 eða markadsvidskipti@kvika.is. Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is. Til athugunar fyrir fjárfesta: Nýherji vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna af birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum. 1) Hæfir fjárfestar eru fagfjárfestar eða viðurkenndir gagnaðilar sem hafa ekki óskað sérstaklega eftir því að hafa stöðu almenns fjárfestis, sbr. 9. tölul. 43. gr. laga um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007, sbr. einnig 9. og 10. tölul. 1. mgr. 2. gr. laganna. |
|||
|