2016-09-23 19:06:09 CEST

2016-09-23 19:06:09 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Fyrirtækjafréttir

Sjóvá: 13,93% eignarhlutur Ríkissjóðs í Sjóvá boðinn til sölu


Samkvæmt frétt frá Markaðsviðskiptum Landsbankans sem birt var í dag býður
Lindarhvoll ehf., fyrir hönd SAT eignarhaldsfélags hf., sem er í eigu
Ríkissjóðs Íslands, til sölu allan eignarhlut Ríkissjóðs í Sjóvá-Almennum
tryggingum hf. Um er að ræða áður útgefna hluti í Sjóvá og nemur
eignarhluturinn 13,93% alls hlutafjár í Sjóvá. 

Salan mun fara fram í útboði sem er undanþegið útgáfu lýsingar í samræmi við
heimild í c-lið, 1. tl., 1. mgr. 50. gr. laga nr. 108/2007 um
verðbréfaviðskipti. Lágmark hvers tilboðs er 1.250.000 hlutir í Sjóvá og er
lágmarksgengi í útboðinu 12,85 kr. á hlut. Tilboðsfrestur er til kl. 8.30
mánudaginn 26. september 2016 og munu niðurstöður verða birtar af hálfu
Landsbankans að loknu útboði og eigi síðar en kl. 9.30 sama dag. 

Fréttina frá Markaðsviðskiptum Landsbankans má sjá í heild sinni hér.