|
|||
2012-03-14 12:11:46 CET 2012-03-15 08:51:57 CET REGULATED INFORMATION Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 Borgartún - ÁrsreikningurÁrsreikningur fagfjárfestasjóðsins LFEST1 vegna ársins 2011Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2010. -- Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi. -- Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi. -- Ársreikningurinn var endurskoðaður af Ernst & Young hf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2011, efnahagi hans 31. desember 2011 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2011, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is Nánari upplýsingar um ársreikning LFEST1 veitir Þorkell Magnússon sjóðstjóri, í síma 444 7472. |
|||
|