|
|||
![]() |
|||
2017-02-06 17:59:34 CET 2017-02-06 17:59:34 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Icelandair Group hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarFlutningatölur janúar 2017Í janúar var farþegafjöldi Icelandair tæplega 206 þúsund og jókst um 18% miðað við janúar á síðasta ári. Framboð var aukið um 22%. Sætanýting var 73,6% samanborið við 74,3% í janúar í fyrra. Farþegar Flugfélags Íslands voru um 20 þúsund og fækkaði um 1% milli ára. Framboð í janúar var 24% meira en í janúar á síðasta ári og skýrist það af flugi til Aberdeen sem flogið er í samstarfi við Icelandair og hófst í mars 2016. Sætanýting nam 62,5%. Seldir blokktímar í leiguflugi voru 14% færri en í janúar á síðasta ári. Fraktflutningar drógust saman um 14% á milli ára. Skýrist það af verkfalli sjómanna á Íslandi sem hefur haft í för með sér samdrátt í útflutningi á fiski. Framboðnum gistinóttum hjá hótelum félagsins fjölgaði um 14% á milli ára. Herbergjanýting var 69,2% og 8,4 prósentustigum hærri en í janúar 2016. MILLILANDAFLUG JAN 16 JAN 15 BR. (%) ----------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 205.734 173.825 18% Sætanýting 73,6% 74,3% -0,7 %-stig Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 855,2 701,0 22% INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG JAN 16 JAN 15 BR. (%) ----------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 20.276 20.399 -1% Sætanýting 62,5% 70,0% -7,5%-stig Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 11,1 9,0 24% LEIGUFLUG JAN 16 JAN 15 BR. (%) ----------------------------------------------------------------- Flugvélanýting 88,9% 100,0% -11,1 %-stig Seldir blokktímar 1.848 2.148 -14% FRAKTFLUTNINGAR JAN 16 JAN 15 BR. (%) ----------------------------------------------------------------- Seldir tonnkm. (FTK´000) 7.398 8.630 -14% HÓTEL JAN 16 JAN 15 BR. (%) ----------------------------------------------------------------- Framboðnar gistinætur 27.807 24.335 14% Seldar gistinætur 19.234 14.782 30% Herbergjanýting 69,2% 60,7% 8,4 %-stig Nánari upplýsingar veita: Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801 Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010 |
|||
|