|
|||
2013-12-06 18:11:34 CET 2013-12-06 18:12:40 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirCORRECTION: Islandsbanki hf. : Fyrsta erlenda skuldabréfaútgáfan undir GMTN útgáfurammanum - 300 m. sænskar krónurThis is a correction of the announcement from 17:03 06.12.2013 GMT. Reason for the correction: Röng fyrirsögn var í íslenskri tilkynningu um fjárhæð útgáfunnar, átti að vera 500 m. sænskar krónur en ekki 300 m. sænkar krónur. Íslandsbanki hefur lokið sínu fyrsta erlenda skuldabréfaútboði að upphæð 500 m. sænskra króna eða sem nemur 9,1 ma. íslenskra króna. Skuldabréfin bera 400 punkta ofan á sænska millibankavexti (Stibor) og eru til 4 ára. Alls tóku yfir 40 fjárfestar frá Svíþjóð, Noregi og Finnlandi þátt í útboðinu en umframeftirspurn var eftir bréfunum. Stefnt er að skráningu skuldabréfanna í Kauphöllina á Írlandi þann 16. desember. Útgáfan er gefin út undir Global Medium Term Notes (GMTN) útgáfuramma bankans sem tilkynnt var um í júlí en hann gefur Íslandsbanka færi á að gefa út jafnvirði 250 m. Bandaríkjadala í mismunandi myntum á föstum og fljótandi vöxtum. Umsjónaraðili útboðsins var Pareto Securities AB í Stokkhólmi. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:"Erlend skuldabréfaútgáfa er skynsamlegt næsta skref fyrir Íslandsbanka og framtíðarrekstur hans, en við höfum lagt mikla áherslu á að fjölga stoðum í fjármögnun bankans með góðum árangri. Grunnrekstur bankans er stöðugur, endurskipulagning gengur vel og eiginfjár- og lausafjárhlutföll afar sterk. Áhugi erlendra fjárfesta er því mikil traustyfirlýsing á því uppbyggingarstarfi sem unnið hefur verið í bankanum undanfarin misseri og sýnir trú á íslensku efnahagslífi. Aðgengi að erlendum fjármagnsmörkuðum og aukið sjálfstæði í fjármögnun tryggir bankanum samkeppnisforskot til lengri tíma. Fyrst og fremst erum við betur í stakk búin til að styðja við viðskiptavini okkar sem stunda alþjóðleg viðskipti og þarfnast fjármögnunar í erlendri mynt. Þannig uppfyllum við best hlutverk bankans, að veita fjármagni til fjárfestinga og uppbyggingar í íslensku atvinnulífi. Í annan stað veitir aukið sjálfstæði í fjármögnun bankanum tækifæri til að greiða upp lán og samninga sem gerðir voru við stofnun hans. Þetta er okkur sérlega mikilvægt skref. Íslandsbanki hefur fest sig í sessi sem stærsti útgefandi sértryggðra skuldabréfa á Íslandi, og hefur alls gefið út 22 ma. kr. frá því bankinn, fyrstur fjármálafyrirtækja eftir hrun, gaf út skráð verðbréf í desember 2011. Íslandsbanki var einnig fyrstur til að skrá víxla í kauphöll Íslands í febrúar 2013 og hefur gefið út 9 ma. kr. það sem af er ári." Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í síma 440 3925. [HUG#1748391] |
|||
|