2010-09-07 13:29:43 CEST

2010-09-07 13:30:41 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning um aukaútdrátt húsbréfa til greiðslu 15. nóvember 2010


Íbúðalánasjóður hefur, samkvæmt lögum um húsnæðisnál nr. 44/1998, með síðari
breytingum, heimild til aukaútdráttar húsbréfa. Þessi heimild er í samræmi við
heimild skuldara fasteignaveðbréfa til að greiða aukaafborganir af skuldabréfum
sínum eða að endurgreiða skuldina að fullu fyrir gjalddaga. Ákvæði þessa efnis
hafa verið í lögum um húsnæðismál allt frá setningu laga nr. 75/1989, sem kom
húsbréfakerfinu á fót. 

Á þessum grundvelli hefur Íbúðalánasjóður látið fara fram aukaútdrátt. Lista
yfir hin útdregnu bréf verður að finna í Lögbirtingarblaðinu þann 15. september
n.k. Við útdráttinn var farin sú leið að draga út húsbréf, flokk á móti flokki,
á þann veg að dregin hafa verið út húsbréf sem svara beint til uppgreiðslna
fasteignaveðbréfa sem skiptanleg voru fyrir húsbréf úr flokknum. Því er
fullkomið samræmi milli uppgreiðslna og útdráttar eins og lögin gera ráð fyrir. 
Aukaútdráttum er beitt til að jafna sjóðsstreymi Íbúðalánasjóðs vegna
uppgreiðslna í samræmi við tilvitnaðar lagaheimildir. 

Húsbréf úr eftirtöldum órafvæddum flokkum voru dregin út í þessum aukadrætti og
koma til greiðslu þann 15. nóvember 2010: 

Heiti                                Nafnverð
1. flokkur 89	( IBH14-0115 )	25.520.000
1. flokkur 90	( IBH15-0815 )	33.135.000
2. flokkur 90 	( IBH15-1115 )	43.360.000
2. flokkur 91	( IBH16-0515 )	58.880.000
3. flokkur 92	( IBH17-0815 )	76.720.000
2. flokkur 93 	( IBH18-0815 )	43.420.000
2. flokkur 94	( IBH19-0515 )	125.860.000
3. flokkur 94 	( IBH19-0815 )	72.460.000