|
|||
2015-07-09 18:45:51 CEST 2015-07-09 18:46:18 CEST REGLERAD INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboðiÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 5 og 6 mánaða. Hver flokkur getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Seldir voru víxlar í flokki ISLA 15 1229 að nafnvirði 760 m. kr. á kröfunni 6,10% (verð 97,2802) en tilboðum var ekki tekið í ISLA 16 0114. Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 2,9 ma. kr. Heildareftirspurn í útboðinu var 960 m. kr. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 17. júlí næstkomandi, með auðkenninu ISLA 15 1229. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752/ 844 4752. * Upplýsingafulltrúi - Már Másson, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4990. [HUG#1936469] |
|||
|