|
|||
2015-11-02 18:15:50 CET 2015-11-02 18:16:51 CET REGLERAD INFORMATION Vátryggingafélag Íslands hf. - HluthafafundirEndanleg dagskrá hluthafafundar í Vátryggingafélagi Íslands hf. þann 10. nóvember 2015.Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. („VÍS“/“félagið“) boðar til hluthafafundar í félaginu og verður hann haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík, þriðjudaginn 10. nóvember 2015 og hefst hann stundvíslega kl. 16:00. Stjórn VÍS hefur ákveðið að stjórnarkjör skuli fara fram á hluthafafundinum. Endanleg dagskrá fundarins er svohljóðandi: 1. Kosning stjórnar og tveggja varamanna. 2. Önnur mál. Hluthafa er heimilt að sækja fund ásamt ráðgjafa, sem hvorki hefur málfrelsi, tillögurétt né atkvæðisrétt. Hluthafa er þó heimilt að gefa ráðgjafa sínum orðið fyrir sína hönd. Einnig getur hluthafi falið umboðsmanni sínum að sækja fyrir sig fund og skal hann þá leggja fram skriflegt og dagsett umboð. Mælst er til þess að notað sé umboðseyðublað sem finna má að fjárfestasíðu félagsins, www.vis.is/fjarfestar. Atkvæðagreiðslur verða einungis skriflegar á fundinum ef einhver atkvæðisbærra fundarmanna krefst þess. Þó skal stjórnarkjör jafnan vera skriflegt ef tillögur koma fram um fleiri stjórnarmenn en kjósa skal. Stjórnarkjör fer fram skv. hlutfallskosningu eftir samþykktum félagsins. Vakin er athygli á ákvæðum 16. gr. samþykkta félagsins um stjórnarkjör þar sem fjallað er um kynjakvóta. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafar geta óskað eftir því að fá atkvæðaseðla senda til sín og skal skrifleg beiðni þar um hafa borist á heimili félagsins a.m.k. fimm dögum fyrir auglýstan hluthafafund. Einnig geta hluthafar vitjað atkvæðaseðla sína á heimili félagsins frá sama tíma eða greitt þar atkvæði. Frestur til að tilkynna um framboð til stjórnar lýkur fimm dögum fyrir hluthafafund, þ.e. þann 5. nóvember nk. Fylla þarf út framboðseyðublað sem finna má á www.vis.is/fjarfestar og senda innan fyrrgreinds tímafrests á stjorn@vis.is. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða lagðar fram hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir hluthafafund. Upplýsingarnar verða auk þess aðgengilegar á vefsíðu félagsins, www.vis.is/fjarfestar. Hluthafafundur er lögmætur án tillits til fundarsóknar ef hann er löglega boðaður. Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á hluthafafundinn á fundarstað frá kl. 15:30 á fundardegi. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Reykjavík, 2. nóvember 2015. Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. |
|||
|