2015-11-03 12:25:02 CET

2015-11-03 12:26:03 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska Engelska
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning um aukaútdrátt húsbréfa til greiðslu 15. janúar 2016


Íbúðalánasjóður hefur, samkvæmt lögum um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari
breytingum, heimild til aukaútdráttar húsbréfa. Þessi heimild er í samræmi við
heimild skuldara fasteignaveðbréfa til að greiða aukaafborganir af skuldabréfum
sínum eða að endurgreiða skuldina að fullu fyrir gjalddaga. Ákvæði þessa efnis
hafa verið í lögum um húsnæðismál allt frá setningu laga nr. 75/1989, sem komu
húsbréfakerfinu á fót. 

Á þessum grundvelli hefur Íbúðalánasjóður látið fara fram aukaútdrátt. Yfirlit
um hin útdregnu bréf verður að finna í Lögbirtingablaðinu 15. nóvember n.k. Við
útdráttinn var farin sú leið að draga út húsbréf, flokk á móti flokki, á þann
veg að dregin hafa verið út húsbréf sem svara beint til uppgreiðslna
fasteignaveðbréfa sem skiptanleg voru fyrir húsbréf úr flokknum. Því er
fullkomið samræmi milli uppgreiðslna og útdráttar, eins og lögin gera ráð
fyrir. 

Gert er ráð fyrir að aukaútdráttum verði áfram beitt til að jafna sjóðsstreymi
Íbúðalánasjóðs vegna uppgreiðslna, í samræmi við tilvitnaðar lagaheimildir. 

Húsbréf úr eftirtöldum flokkum voru dregin út í þessum aukadrætti og koma til
greiðslu 15. janúar 2016: 



Heiti                      Nafnverð  
3. flokkur 91  IBH16-1015   3.210.000
1. flokkur 92  IBH17-0115  14.200.000
2. flokkur 92  IBH17-0415  13.700.000
1. flokkur 93  IBH18-0415  12.620.000
3. flokkur 93  IBH18-1015  18.300.000
1. flokkur 94  IBH19-0115  42.230.000
1. flokkur 95  IBH20-0115  50.060.000
3. flokkur 96  IBH36-0115  27.750.000