|
|||
![]() |
|||
2016-08-22 10:00:33 CEST 2016-08-22 10:00:33 CEST REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Reglubundin tilkynning um kaup Fjarskipta á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 33 keyptu Fjarskipti hf. 383.967 eigin hluti að kaupverði 16.856.151 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) -------------------------------------------------------------------- 15.08.2016 13:28 3.967 43,90 174.151 -------------------------------------------------------------------- 17.08.2016 09:34 380.000 43,90 16.682.000 -------------------------------------------------------------------- Samtals 383.967 16.856.151 Er hér um að ræða kaup Fjarskipta á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 1. júní 2016. Fjarskipti áttu 5.982.386 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 6.366.353 eigin hluti eða sem nemur 2,34% af útgefnum hlutum í félaginu. Fjarskipti hafa keypt samtals 4.197.653 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,54% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 184.872.451 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 6.734.000 hlutum eða sem nemur 2,5% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga." Nánari upplýsingar veitir: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is [HUG#2036260] |
|||
|