2016-08-22 11:00:00 CEST

2016-08-22 11:00:00 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 33 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.057.198 eigin hluti að
kaupverði 12.072.162 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning   Tími  Keyptir hlutir  Viðskiptaverð (gengi)  Kaupverð (kr.)
------------------------------------------------------------------------
------------------------------------------------------------------------
15.08.2016  13:30          19.066                  11,32         215.827
16.08.2016  14:27         432.610                  11,45       4.953.385
------------------------------------------------------------------------
17.08.2016  09:31         605.522                  11,40       6.902.951
------------------------------------------------------------------------
   Samtals              1.057.198                             12.072.162



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. júní 2016. 

Sjóvá átti 17.254.260 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum
18.311.458 eigin hluti eða sem nemur 1,17% af útgefnum hlutum í félaginu. 

Sjóvá hefur keypt samtals 8.395.685 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem
nemur 0,54% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra
96.531.938 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000
hluta eða sem nemur 1,6% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en
300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september
2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um
hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og
markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í
endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ 



Nánari upplýsingar veitir:

Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000