2016-08-22 11:16:19 CEST

2016-08-22 11:16:19 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Nýir framkvæmdastjórar tjónaþjónustu og einstaklingsráðgjafar og markaðsmála hjá Tryggingamiðstöðinni


Gengið hefur verið frá ráðningu Kjartans Vilhjálmssonar hdl., sem nú gegnir
starfi framkvæmdastjóra tjónaþjónustu TM, í starf framkvæmdastjóra
einstaklingsráðgjafar og markaðsmála hjá félaginu. Ragnheiður Agnarsdóttir,
fráfarandi framkvæmdastjóri einstaklingsráðgjafar og markaðsmála TM, lætur af
störfum hjá félaginu frá og með 1. september nk. og mun Kjartan taka við hennar
starfi frá og með sama degi. 

Björk Viðarsdóttir hdl., sem hefur veitt persónutjónum TM forstöðu síðastliðin
sex ár, tekur við starfi framkvæmdastjóra tjónaþjónustu félagsins frá og með 1.
september nk. 

Kjartan útskrifaðist sem Cand. jur. frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2005 og
öðlaðist málflutnings-réttindi fyrir héraðsdómi 2006. Kjartan hefur starfað hjá
TM frá 2005, fyrst sem lögfræðingur tjónaþjónustu og síðar sem deildarstjóri
líkamstjóna. Kjartan hefur verið framkvæmdastjóri tjónaþjónustu TM frá maí
2008. 

Björk útskrifaðist sem Cand. jur. frá lagadeild Háskóla Íslands í júní 2004 og
lauk málflutningsprófi fyrir héraðsdómi 2009. Hún starfaði hjá
Útlendingastofnun á árunum 2005 – 2007, sem lögfræðingur og síðar
forstöðumaður. Björk hóf störf hjá TM í ágúst 2008 sem lögfræðingur í
tjónaþjónustu félagsins en hefur gegnt starfi forstöðumanns persónutjóna frá
2010.