2016-08-22 11:31:02 CEST

2016-08-22 11:31:02 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Reitir fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

REITIR: Lindarhvoll selur 6,38% hlut í Reitum


Samkvæmt upplýsingum í frétt frá Landsbankanum lauk útboði á eignarhlut
Ríkissjóðs Íslands í Reitum fasteignafélagi hf. klukkan 8:30 í dag, mánudaginn
22. ágúst 2016. Markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með útboðinu. 

Fjárfestar óskuðu eftir því að kaupa 73.010.000.- hluta í Reitum, eða sem nemur
9,9% af heildarhlutafé í Reitum. 

Sölugengi í útboðinu var ákveðið 83,30 krónur á hlut. Heildarnafnverð
samþykktra tilboða, eftir skerðingu var 47.222.796 hlutir eða sem samsvara
6,38% af heildarhlutafé Reita. Heildarsöluverðmæti samþykktra tilboða eftir
skerðingu er því rúmlega 3,9 ma.kr. Að útboðinu loknu á Ríkissjóður ekki
eignarhlut í Reitum. 

Öll samþykkt tilboð voru boðin fjárfestum á sama gengi, þar sem lægsta
samþykkta gengi réð sölugenginu. Samþykkt tilboð sem bárust á sama gengi og
sölugengi voru skert sem nam umframeftirspurn, en þó ekki niður fyrir 200.000
hluti að nafnverði sem var lágmarksfjöldi hluta sem hægt var að bjóða í
útboðinu. Tilboðum sem bárust á lægra gengi en sölugengi var hafnað. 
Viðskiptadagur vegna útboðsins er 22. ágúst 2016 og greiðslu- og
afhendingardagur vegna viðskiptanna er miðvikudagurinn 24. ágúst 2016. 

Útboðið fór fram í samræmi við útboðsskilmála sem birtir voru á vefsíðu
Landsbankans, www.landsbankinn.is þann 19. ágúst 2016. 

Nánari upplýsingar veita:
Árni Maríasson, forstöðumaður Markaðsviðskipta Landsbankans, s.
410-7335/863-9998 
Arnar Arnarsson, Markaðsviðskipti Landsbankans, s. 410-7336/821-2083