2009-04-27 11:09:33 CEST

2009-04-27 11:10:42 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Glitnir sjóðir - Ársreikningur

- Ársreikningur 2008


Stjórn Íslandssjóða hf. (áður Glitnis Sjóða), sem rekur Verðbréfasjóði,
Fjárfestingarsjóði og Fagfjárfestasjóði hefur staðfest ársreikning félagsins
fyrir árið 2008. 
Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2008
●  Tap fært á hlutdeildarskírteini eigenda Verðbréfa- og Fjárfestingarsjóða
   Íslandssjóða var 68 m.kr. árið 2008 samanborið við hagnað uppá 19.302 árið
   2007. 

●  Hreinar rekstrartekjur námu 2.004 m.kr. samanborið við 1.937 m.kr. árið áður,
   jukust um 3,5% 

●  Rekstrargjöld námu 1.215 m.kr. samanborið við 1.599 m.kr. árið áður.

●  Heildareignir félagsins námu 2.470 m.kr. í árslok en voru 764 m.kr. í
   ársbyrjun. 

●  Eigið fé í árslok 2008 nam 1.031 m.kr. en var 358 m.kr. í ársbyrjun

●  Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um
   fjármálafyrirtæki, var 107,7% í árslok 2008 en þetta hlutfall má ekki vera
   lægra en 8,0%.
●  Fjármunir sjóða í stýringu Íslandssjóða hf. námu 132.904 m.kr. í lok
   ársins samanborið við 238.075 m.kr. í árslok 2007, drógust því eignir í
   stýringu saman um 44,2% á árinu 2008.
●  Íslandssjóðir hf. sér um stýringu og rekstur á sjö sjóðsdeildum í
   Verðbréfasjóðum, fjórum sjóðsdeildum í Fjárfestingarsjóðum og tveimur
   sjóðsdeildum í Fagfjárfestasjóðum. Einnig sér félagið um stýringu á einum
   verðbréfasjóði og einum vogunarsjóði í Glitnir Asset Management S.A. í   Lúxemborg.  Heildareignir í stýringu Íslandssjóða hf. í Lúxemborg eru  2.433
   m.kr. 

●  Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur
   ársreikning Íslandssjóða og B-hluta sem inniheldur ársreikning Verðbréfasjóða
   og Fjárfestingarsjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við
   reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af
   Fjármálaeftirlitinu. 

●  Hagnaður rekstrarfélagsins eftir skatta árið 2008 nam 673,3 m.kr. samanborið
   við 275,2 m.kr. árið 2007. Neikvæð ávöxtun var hjá tveimur Verðbréfasjóðum,
   þ.e. Sjóði 1 sem er fyrirtækjaskuldabréfasjóður og Sjóði 6 sem er
   hlutabréfasjóður og einum Fjárfestingarsjóði, Sjóði 10 sem er
   hlutabréfasjóður.
●  Athygli er vakin á því að fjárfestingarstefna er hlutlaus staða viðkomandi
   sjóðs og til að ná betri árangri í stýringu eru vikmörk notuð sem er
   tilgreint hámark og lágmark. Allur þessi rammi er fjárfestingarstefna
   viðkomandi sjóðs. 
   Öllum sjóðum nema Sjóði 6 er stýrt skv. virkri stýringu til að ná betri
   árangri í ávöxtun en stefnan (hlutlaus) gerir ráð fyrir. 

●  Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af PricewaterhouseCoopers hf. sem
   telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á
   árinu 2008.

Lykiltölur í m.kr.: Sjá viðhengi.



Afkoma Verðbréfasjóða fyrir árið 2008

●  Tap Verðbréfasjóða fært á hlutdeildarskírteini árið 2008 nam 642 m.kr.,
   samanborið við hagnað uppá 3.950 m.kr. árið 2007. 

●  Hrein eign Verðbréfasjóða nam 80.032 m.kr. samanborið við 70.528 m.kr.
   árið 2007. 

Lykiltölur í m.kr.: Sjá viðhengi.


Afkoma Fjárfestingarsjóða fyrir árið 2008

●  Hagnaður Fjárfestingarsjóða færður á hlutdeildarskírteini árið 2008 nam 574
   m.kr., samanborið við 15.352 m.kr. árið 2007. 

●  Hrein eign Fjárfestingarsjóða nam 6.232 m.kr. samanborið við 152.543 m.kr.
   árið 2007. 

Lykiltölur í m.kr.: Sjá viðhegni.


Ársreikningur félagsins mun liggja frammi hjá Eignastýringu Íslandsbanka,
Kirkjusandi, 4. hæð og á www.islandsbanki.is/sjodir  frá og með 28. apríl 2009. 

Nánari upplýsingar um ársreikning Íslandsssjóða hf. veitir Agla Elísabet
Hendriksdóttir, fram¬kvæmda¬stjóri félagsins í síma 440-4917.