2009-11-06 16:40:50 CET

2009-11-06 16:41:50 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landic Property hf. - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagslegri endurskipulagningu fasteignafélagsins Landic Property Ísland lokið og Landic Property hf. hyggst leita nauðasamninga við kröfuhafa


- Fjárhagslegri endurskipulagningu fasteignafélagsins Landic Property Ísland
lokið 
- Viðar Þorkelsson ráðinn forstjóri
- Móðurfélag hættir starfsemi og hyggst leita nauðasamninga við kröfuhafa

Landic Property hf. hefur samið við NBI (Landsbankann), Nýja Kaupþing,
Íslandsbanka, Glitni, Haf Funding og Byr um fjárhagslega endurskipulagningu
íslenska fasteignafélagsins Landic Property Ísland og dótturfélaga. 

Samningarnir tryggja áframhaldandi rekstargrundvöll innlends fasteignasafns
Landic Property sem samanstendur af 120 fasteignum, yfir 400 þúsund fermetrum,
einkum verslunar- og skrifstofuhúsnæði miðsvæðis í Reykjavík. Landic Property
Ísland er stærsta fasteignafélag landsins en meðal eigna félagsins eru Kringlan
og Hilton Reykjavík Nordica. Landic Property Ísland er nú í meirihlutaeigu
íslenskra banka. Eignir félagsins eru um 90 milljarða króna virði. Viðar
Þorkelsson hefur verið ráðinn forstjóri Landic Property Ísland og Einar
Þorsteinsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri félagsins. 

Starfsemi móðurfélagsins, Landic Property hf., hefur nú verið hætt og hefur
stjórn þess óskað eftir heimild til nauðasamningsumleitana við lánardrottna. 

Um mitt ár 2008 voru eignir Landic Property hf., að stærstum hluta fasteignir á
Norðurlöndunum. Mikil hækkun skulda vegna falls íslensku krónunnar og lækkun
fasteignaverðs í kjölfar efnahagshrunsins setti rekstur móðurfélagsins í uppnám
og hefur félagið verið í greiðslustöðvun síðan 16. apríl 2009. Var eigið fé
Landic Property þá orðið neikvætt. Fulltrúar kröfuhafa tóku sæti í stjórn
félagsins og eigendur viku. Síðastliðna 12 mánuði hafa  stjórnendur, í samvinnu
við kröfuhafa, unnið að því að verja íslenska starfssemi félagsins og losa um
erlendar eignir og veðskuldir en í því ferli hefur meðal annars verið gengið
frá sölu á eignasöfnum félagins í Danmörku og Finnlandi. 

Eftirstandandi óveðsettar eignir móðurfélagsins Landic Property hf. nema nú
rúmlega 5 milljörðum króna, en skuldir við ótryggða kröfuhafa eru taldar nema
um 120 milljörðum króna. Stjórn félagsins telur að hagsmunum kröfuhafa sé best
borgið með því að kröfuhöfum verði afhentar allar eignir móðurfélagins fyrir
atbeina nauðasamninga og félaginu slitið. Kröfuhafar sem fara með yfir 76% af
upphæð krafna hafa lýst yfir stuðningi við umsókn um heimild til
nauðasamningsumleitana sem lögð var fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag. 

Viðar Þorkelsson, forstjóri Landic Property Ísland: „Það er vissulega
ánægjulegt að tekist hefur að verja rekstur íslenska rekstrarfélagsins, enda
var það yfirlýst markmið þeirra björgunaraðgerða sem staðið hafa yfir allt
þetta ár. Landic Property Ísland býr að vönduðu eignasafni og reksturinn er
tryggur. Á sama tíma eru það vonbrigði að lánardrottnar og hluthafar Landic
Property hf. verða fyrir jafnmiklu tjóni eins og raun ber vitni. Það er þó mitt
mat að með samvinnu við kröfuhafa og samstilltu átaki starfsmanna hafi tekist
að bjarga því sem bjargað varð og færi ég þessum aðilum kærar þakkir fyrir
þeirra framlag við erfiðar aðstæður.” 


Frekari upplýsingar veitir:
Viðar Þorkelsson
forstjóri Landic Property Ísland ehf.
Sími 669 4444
E-mail: vth@landicproperty.com