2016-09-27 16:54:46 CEST

2016-09-27 16:54:46 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nýherji hf. - Fyrirtækjafréttir

Applicon selur og innleiðir bankakerfi fyrir SBAB Bank í Svíþjóð


REYKJAVÍK - 27. september 2016

Applicon AB í Svíþjóð, dótturfélag Nýherja hf., skrifaði í dag undir samning um
sölu og innleiðingu á kjarnabankakerfum fyrir SBAB Bank AB þar í landi. 

SBAB Bank AB er sænskur banki sem sérhæfir sig í lánveitingum og
sparnaðarlausnum til einstaklinga, fasteignafyrirtækja og húsnæðissamtaka. Hjá
bankanum starfa um 450 manns í Stokkhólmi, Gautaborg, Karlstad og Malmö.
Bankinn er í eigu sænska ríkisins og er með um SEK 303 milljarða í útlán en um
SEK 80 milljarða í innlánum. Fjöldi útlána er um 350.000. Moodys gefur bankanum
Aaa í langtímaeinkum. 

SBAB mun innleiða kjarnabankakerfi frá SAP AG ásamt tengdum viðbótarlausnum frá
Applicon.  Applicon selur kerfin og sér um innleiðinguna, auk þess að sjá um
tengingar við önnur kerfi bankans og við sænska greiðslumiðlun.
Innleiðingarferlið er áætlað allt að 3 ár og mun hafa jákvæð áhrif á tekjur og
rekstrarniðurstöðu Nýherjasamstæðunnar næstu misseri.  Samningurinn mun enn
fremur skjóta styrkum stoðum undir þann rekstur sem Applicon félögin hafa byggt
upp síðustu ár sem leiðandi í innleiðingu, ráðgjöf og rekstri á alþjóðlegum
kjarnabankalausnum.  Að lokinni  innleiðingu mun Applicon AB sjá um
hugbúnaðarrekstur á kerfunum fyrir SBAB og sér þá um rekstur kjarnabankakerfi
fyrir tvo af tíu stærstu bönkum Svíþjóðar, SBAB Bank og Landshypotek Bank. 

„Bankar á Norðurlöndum eru í auknum mæli að endurnýja kerfi sín og takast á við
þá stafrænu byltingu sem á sér stað í bankaheiminum. Það er okkur mikil
viðurkenning að SBAB taki þetta skref með okkur og endurspeglar samkomulagið
trú markaðarins á þekkingu og lausnum Applicon,“ segir Finnur Oddsson forstjóri
Nýherja.