|
|||
![]() |
|||
2016-09-27 18:26:30 CEST 2016-09-27 18:26:30 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. : Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði á fjórum flokkum sértryggðra skuldabréfa. Alls bárust tilboð að fjárhæð 6.600 m. kr. í útboðinu og var tilboðum tekið fyrir 2.680 m. kr. Seld voru skuldabréf í LBANK CBI 28, nýjum verðtryggðum markflokki, fyrir 1.100 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,15%. Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 960 m. kr. vegna verðbréfalána í tengslum við viðskiptavakt. Heildarstærð flokksins við útgáfu verður 2.060 m. kr. Seld voru skuldabréf í LBANK CB 19 fyrir 160 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 5,50%. Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 900 m. kr. vegna verðbréfalána í tengslum við viðskiptavakt. Áður hefur Landsbankinn gefið út 11.600 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 12.660 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Seld voru skuldabréf í LBANK CB 17 fyrir 1.420 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 5,75%. Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 180 m. kr. vegna verðbréfalána í tengslum við viðskiptavakt. Áður hefur Landsbankinn gefið út 1.800 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 3.400 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Engum tilboðum var tekið í LBANK CBI 22 en flokkurinn verður stækkaður um 900 m. kr. vegna verðbréfalána í tengslum við viðskiptavakt. Áður hefur Landsbankinn gefið út 16.860 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 17.760 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 4. október 2016. Á uppgjörsdegi taka nýir samningar um viðskiptavakt gildi og munu Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. [] |
|||
|