2013-10-15 18:01:00 CEST

2013-10-15 18:01:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útgáfa á RIKS 33 0321 í tengslum við gjaldeyrisútboð


Í dag 15. október fór fram gjaldeyrisútboð hjá Seðlabanka Íslands þar sem
bankinn bauðst til þess að kaupa evrur gegn afhendingu á ríkisbréfum í
verðtryggða flokknum RIKS 33 0321. Aðgerðin sem er liður í losun hafta á
fjármagnsviðskiptum mun draga úr árlegri endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs.
Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir kr. 653.262.359 að nafnverði. 

Samþykkt gengi evru gangvart krónu var 210 í útboðinu.

Þann 11. október var tilkynnt um fast verð bréfanna sem er 111,547832 kr. með
áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 18. október
2013 (krafa 2,79%).1 



  1Hreint verð (e. clean price) 103,1