|
|||
![]() |
|||
2017-11-19 22:26:28 CET 2017-11-19 22:27:09 CET REGLERAD INFORMATION FAST-1 slhf. - InnherjaupplýsingarFAST-1 slhf. - Samningur um einkaviðræður og helstu skilmála sölu á öllu eignasafni FAST-1 slhf.FAST-1 slhf. og Reginn hf. hafa undirritað samning um einkaviðræður og helstu forsendur og skilmála kaupsamnings varðandi möguleg kaup hins síðarnefnda á öllu hlutafé í dótturfélögum FAST-1; HTO ehf. og FAST-2 ehf. Fjárfestingareignir HTO eru Borgartún 8-16 og Katrínartún 2, en fjárfestingareignir FAST-2 eru Skúlagata 21, Skútuvogur 1 og Vegmúli 3. Áður hefur FAST-2 ehf. selt fasteignina að Klettagörðum 13. Um er að ræða allt fasteignasafn FAST-1, sem samanstendur af hágæða eignum en eignasafnið er að 98% í langtímaleigu til traustra aðila. Meðal stærstu leigutaka eru Reykjavíkurborg, Fjársýsla Ríkisins, Reiknistofa Bankanna og Fjármálaeftirlitið en um 57% tekna koma frá opinberum aðilum. Efnt var til opins söluferlis, sbr. tilkynning félagsins dagsett 4. október sl., og er samningurinn gerður í kjölfar þess. Mikill áhugi var á eignasafninu en alls bárust sex tilboð í eignir félagsins. Samningurinn sem nú er gerður felur í sér að heildarvirði eigna sé samtals 23,2 milljarðar króna, en gerður er fyrirvari um framkvæmd áreiðanleikakönnunar, samþykki Samkeppniseftirlitsins, samþykki hluthafafundar FAST-1 auk annarra skilyrða sem hefðbundin eru við viðskipti af þessum toga. Verði af viðskiptunum mun skuldabréfaflokkur FAST-1 slhf., FAST-1 12 1 verða greiddur upp að fullu í samræmi við skilmála skuldabréfsins. FAST-1 er í eigu lífeyrissjóða, tryggingafélaga og annarra fagfjárfesta. Á meðal stærstu hluthafa FAST-1 eru Gildi-lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóður verzlunarmanna með tæplega 20% hlut hver, Festa lífeyrissjóður með tæplega 10% hlut og Almenni lífeyrissjóðurinn með tæplega 7% hlut. Félagið er í stýringu hjá Íslandssjóðum og Contra. Íslandsbanki og Landslög veita FAST-1 ráðgjöf í tengslum við söluferlið. Nánari upplýsingar veita: * Haukur Skúlason, stjórnarformaður FAST-1 slhf. í gegnum netfangið haukurskula@islandssjodir.is eða símanúmerið 844 4931. * Gísli Reynisson, framkvæmdarstjóri FAST-1 slhf. í gegnum netfangið gisli@contra.is eða símanúmerið 856 5111. [] |
|||
|