2011-11-24 17:55:53 CET

2011-11-24 17:56:54 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsvirkjun - Fyrirtækjafréttir

Standard & Poor's breytir horfum á lánshæfismati Landsvirkjunar úr neikvæðum í stöðugar


Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur breytt horfum á lánshæfismati
Landsvirkjunar úr neikvæðum í stöðugar.  Mat fyrirtækisins á lánshæfiseinkunn
Landsvirkjunar, BB, helst óbreytt.  Tilkynning Standard & Poor's kemur í
kjölfar samskonar breytingar sem fyrirtækið hefur gert fyrir lánshæfismat
ríkissjóðs tilkynnt þann 23. nóvember. 

Að mati Standard & Poor's endurspeglar breytingin almennt bættar efnahagshorfur
á Íslandi. 
Landsvirkjun telur að þessi breyting hafi takmörkuð áhrif á útistandandi
skuldabréf fyrirtækisins. 



Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs,
í síma 515-9010, netfang: rafnar@lv.is