2016-03-10 10:23:52 CET

2016-03-10 10:23:52 CET


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Mosfellsbær - Fyrirtækjafréttir

Tilboð í skuldabréf Mosfellsbæjar


Mosfellsbæ hefur borist tilboð frá fjárfestum, fyrir milligöngu
markaðsviðskipta Arctica Finance, í skuldabréf í flokknum MOS 15 1 fyrir
samtals 500 milljónir króna að nafnverði á ávöxtunarkröfunni 3,27%. 

Tilboðið verður lagt fyrir bæjarstjórn til samþykktar þann 16. mars
næstkomandi. Verði tilboðið samþykkt verður skuldabréfaflokkurinn stækkaður um
kr. 500.000.000 að nafnverði og heildarstærð flokksins eftir stækkun verður kr.
1.000.000.000. 



Nánari upplýsingar veitir:
Haraldur Sverrisson
Bæjarstjóri Mosfellsbæjar
S: 525-6700