2012-03-16 14:35:22 CET

2012-03-16 14:36:23 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Reitir II - Ársreikningur

Afkoma Reita II á árinu 2011



Tap Reita II ehf. á árinu 2011 nam 1.321 milljón króna samanborið við 627
milljón króna tap á árinu áður. Rekstrarhagnaður félagsins á tímabilinu var
1.061 milljón króna samanborið við 1.129 milljónir króna á árinu 2010. 

Horfur í rekstri félagsins á árinu 2012 eru ágætar en vænta má neikvæðrar
afkomu vegna fjármagnsliða líkt og á árinu 2011. Móðurfélag Reita II ehf.,
Reitir fasteignafélag hf., hyggur á skráningu í kauphöll á árinu 2012 og í
aðdraganda hennar er gert ráð fyrir endurskipulagningu á skuldum samstæðunnar,
að skuldum Reita II meðtöldum. 

Lykiltölur:

  -- Heildareignir námu 20.849 milljónum króna þann 31. desember 2011 sem er
     lækkun um 280 milljónir króna á árinu.
  -- Eigið fé félagsins nam 1.902 milljónum króna á sama tíma.
  -- Rekstrartekjur ársins námu námu 1.617 milljónum króna samanborið við 1.632
     milljónir króna á sama tíma árið áður.

Reitir II á og rekur 18 fasteignir á Íslandi og er félagið eitt af 7
dótturfélögum í 100% eigu Reita fasteignafélags hf. Upplýsingar um afkomu
móðurfélagsins, Reita fasteignafélags, má finna á www.reitir.is. 

Nánari upplýsingar veitir:

Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita

Sími 575 9000

einar@reitir.is

Arsreikningur 2011.pdf