2008-03-14 18:07:35 CET

2008-03-14 18:08:35 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Glitnir sjóðir - Ársreikningur

2007


Stjórn Glitnis sjóða hf., sem rekur Verðbréfasjóði Glitnis, Fjárfestingarsjóði
Glitnis og Fagfjárfestasjóði Glitnis hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir
árið 2007. 

Afkoma Glitnis sjóða hf. árið 2007 - 63,3% vöxtur eigna í stýringu

●  Hagnaður Glitnis sjóða hf. eftir skatta árið 2007 nam 275,2 m.kr. samanborið
   við 28,9 m.kr. árið 2006.
●  Hagnaður færður á hlutdeildarskírteini eigenda Verðbréfa- og
   Fjárfestingarsjóða Glitnis var 19.302 m.kr. árið 2007 samanborið við 11.857
   árið 2006 sem er 62,8% aukning á milli ára.
●  Hreinar rekstrartekjur námu 1.937 m.kr. samanborið við 1.155 m.kr. árið áður,
   jukust um 67,7% 

●  Rekstrargjöld námu 1.599 m.kr. samanborið við 1.120 m.kr.

●  Heildareignir félagsins námu 764 m.kr. en voru 215 m.kr. í ársbyrjun.
●  Eigið fé í árslok 2006 nam 358 m.kr. en var 83 m.kr. í ársbyrjun

●  Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um
   fjármálafyrirtæki, var 63,1% í árslok 2007 en þetta hlutfall má ekki vera
   lægra en 8,0%. 

●  Fjármunir sjóða í stýringu Glitnis sjóða hf. námu 238.578 m.kr. í
   lok ársins samanborið við 145.765 m.kr. í árslok 2006, jukust um 63,3% á
   árinu 2007. 

●  Glitnir sjóðir hf. sér um stýringu og rekstur á sex sjóðsdeildum í
   Verðbréfasjóðum Glitnis, fjórum sjóðsdeildum í Fjárfestingarsjóðum Glitnis og
   einni sjóðsdeild í Fagfjárfestasjóðum Glitnis. Einnig sér félagið um
   stýringu á tveimur verðbréfasjóðum og einum vogunarsjóði í Glitnir Asset
   Management S.A. í Lúxemborg.  Heildareignir í stýringu Glitnis sjóða hf. í
   Lúxemborg eru 8.513 m.kr. 

●  Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur
   ársreikning Glitnis sjóða og B-hluta sem inniheldur ársreikning
   Verðbréfasjóða Glitnis og Fjárfestingarsjóða Glitnis. Þessi framsetning á  
   reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga
   verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu. 

●  Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af PricewaterhouseCoopers hf. sem
   telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á
   árinu 2007.

Ársreikningur félagsins verður tilbúinn 1. apríl og mun liggja frammi hjá
Eignastýringu Glitnis, Kirkjusandi, 4. hæð og á www.glitnir.is/sjodir 
Nánari upplýsingar um ársreikning Glitnis sjóða hf. veitir Eggert Þór
Kristófersson, framkvæmdastjóri félagsins í síma 440-4955.