|
|||
2010-08-13 17:34:42 CEST 2010-08-13 17:35:41 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð óverðtryggðra og verðtryggðra ríkisbréfa RIKS 12 0824 og RIKS 21 0414Föstudaginn 20. ágúst kl. 11:00 fer fram útboð með tilboðsfyrirkomulagi hjá lánamálum ríkisins. Í þessu útboði verða seld bréf í nýjum tveggja ára flokki ríkisbréfa RIKB 12 0824. Flokkurinn ber 4,25% árlega nafnvexti með gjalddaga 24. ágúst ár hvert. Lokagjalddagi bréfsins er 24. ágúst 2012. Frekari lýsingu á flokknum er hægt að sjá á www.lanamal.is. Einnig verða boðin til sölu bréf í verðtryggða flokknum RIKS 21 0414. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. Lánamál ríkisins áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 25. ágúst 2010. Í þessu útboði óskar Lánamál ríkisins eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokka ríkisverðbréfa: Flokkur Lokagjalddagi Útistandandi fjárhæð* Lánstími RIKB 12 0824 24.8.2012 0 m.kr. 2 ár RIKS 21 0414 14.4.2021 26.182 m.kr. 11 ár *að nafnverði Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu lánamál ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 24. ágúst 2010. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 25. ágúst 2010. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins, í síma 569 9633. |
|||
|