2009-04-08 13:18:27 CEST

2009-04-08 13:19:32 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
BYR - sparisjóður - Fyrirtækjafréttir

- Byr semur við erlenda lánardrottna


Byr sparisjóður og erlendir lánveitendur sjóðsins hafa gert með sér samkomulag
vegna lánasamninga sem kveða á um lágmarks eiginfjárhlutfall umfram það sem
fram kemur í lögum um fjármálafyrirtæki.  Samkomulagið kveður á um að
tímabundið sé fallið frá eiginfjárkröfum umfram lögbundið hlutfall.  Allir
lánveitendur samþykktu samkomulagið samhljóða. 

Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri segir þetta samkomulag hafa mikla þýðingu
fyrir Byr sparisjóð þar sem það tryggir að erlendir kröfuhafar gefa sjóðnum
svigrúm til að vinna sig út úr fjármálakreppunni.  Ragnar segir að í ljósi
þeirra erfiðu aðstæðna sem uppi eru á fjármálamörkuðum heimsins sé þetta
samkomulag Byrs og erlendu lánadrottnanna mikill sigur fyrir sparisjóðinn. 

Nánari upplýsingar:
Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri í síma 575-4000.