2015-04-15 16:44:05 CEST

2015-04-15 16:44:23 CEST


REGULATED INFORMATION

English
Hafnarfjarðarkaupstaður - Annual report/ annual accounts

Hafnarfjarðarkaupstaður ársreikningur 2014


Ársreikningur Hafnarfjarðarkaupstaðar 2014

Rekstrarniðurstaða ársins fyrir óvenjulega liði var jákvæð um 409 milljónir
króna en áætlun gerði ráð fyrir rekstrarafgangi að fjárhæð 619 milljónir. Þetta
frávik má rekja til hækkunar á  lífeyrisskuldbindingu sveitarfélagsins, um 928
milljónir króna, sem er 515 milljónir umfram áætlun.

Rekstrarniðurstaða ársins var jákvæð um 76 milljónir króna en meðal óvenjulegra
liða er gjaldfærsla vegna niðurstöðu dóms Hæstaréttar frá 5. mars 2015 að
sveitarfélaginu beri að greiða ríkinu fjármagnstekjuskatt auk vaxta vegna sölu á
eignarhlut í HS Orku hf. á árinu 2008 að fjárhæð 333 milljóna króna.

Tekjur  námu 19.648 milljónum króna sem er  418 milljónum umfram áætlun. Laun og
launatengd  gjöld  eru  stærsti  útgjaldaliður  sveitarfélagsins  og námu 9.985
milljónum  króna sem  er 442 milljónum  krónum hærri  en áætlun gerði ráð fyrir.
Annar kostnaður var 7.163 milljónir sem er 230 milljónum umfram áætlun. Hagnaður
fyrir fjármagnsliði og óreglulega liði nam 1.634 milljónum króna. Fjármagnsliðir
námu  1.226 milljónum  króna  sem  er  67 milljónum  umfram  áætlun. Veltufé frá
rekstri  nam um 1.593 milljónum króna sem er 478 milljónum lægra en áætlun gerði
ráð fyrir.

Heildarskuldir bæjarins lækkuðu um 696 milljónir króna á árinu þrátt fyrir
hækkun lífeyrisskuldbindingar. Skuldahlutfallið hélt áfram að lækka og var komið
í 202% um áramótin en var hæst 294% árið 2009. Skuldaviðmiðið var komið í 176% í
lok árs en það var 274% árið 2009.

Rekstur málaflokka gekk vel og var í takt við áætlun. Stærsti málaflokkurinn er
fræðslu- og uppeldismál en til hans var varið um 8.748 milljónum króna. Til
félagsþjónustu var varið um 2.637 milljónum króna og til æskulýðs- og
íþróttamála var varið um 1.599 milljónum króna.

Heildareignir í lok árs námu samtals 48.198 milljónum króna og hafa þær lækkað
um 285 milljónir milli ára og heildarskuldir og skuldbindingar námu samtals
39.766 milljónum króna.

Íbúar Hafnarfjarðar voru 27.818 þann 1. desember 2014 samanborið við 27.325 árið
áður sem  er íbúafjölgun um 493 eða 1,8%.

Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2014 var lagður fram í bæjarstjórn í
dag og er aðgengilegur á vef Hafnarfjarðar www.hafnarfjordur.is




[HUG#1911478]